Færð þú góða þjónustu hjá þínu sveitarfélagi
Góða (1481)
34.2%
Sæmilega (1453)
33.5%
Slæma (1402)
32.3%
Markmiðið með rekstri skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa svæðisins sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja vinna 2-3 daga í viku í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofuaðstöðu fyrir 5 manns, með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi.
Fjöldi gesta kynnti sér aðstæður og þjónustu skrifstofuhótelsins á sérstakri opnunarathöfn s.l. fimmtudag og voru þeir ánægðir með þessa nýjung. Orri Hlöðversson bæjarstjóri í Hveragerði og fromaður verkefnisstjórnar Sunnan3 bauð gesti velkomna, Árni Magnússon félagsmálaráðherra flutti ávarp og Sigurður Tómas Björgvinsson verkefnisstjóri Sunnan3 og Páll Bjarnason framvkæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurlands kynntu hugmyndina á bak við rekstur skrifstofuhótels.
Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótela er að koma til móts við þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgar- svæðinu, en vilja og hafa tök á því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofu-aðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heima-byggð. Hér er einnig um að ræða mögu-leika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.
Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa sveitarfélaganna þriggja sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á að vinna hluta sinnar vinnu í heimabyggð. Leitað er eftir fullbúinni skrifstofuaðstöðu með öflugu háhraðasambandi. Æskilegt er að húsnæðið sé rekið í tengslum við annan rekstur til að tryggja lifandi starfsumhverfi og einnig til að halda niðri rekstrarkostnaði. Ekki er skilyrði að sami aðilinn sjái um rekstur hótelanna þriggja.
Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð, en einnig er stefnt að hagræðingu fyrir vinnuveitendur, einkum í lækkun skrifstofukostnaðar.
Áætlað er að tilraunin standi í eitt ár og að þeim tíma liðnum verður gerð úttekt á árangri hennar. Sunnan3 veitir fjárstuðning til rekstursins á meðan að á tilrauninni stendur, en markmiðið er að í framtíðinni verði skrifstofuhótelin sjálfbærar rekstrareiningar.
Hér má finna kröfulýsingu vegna skrifstofuhótels.
Skrifstofuhótelið er samvinnuverkefni Sunnan3 - rafræns samfélags, Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og radíóþjónustu Suðurlands (TRS). Skrifstofuhótelið verður staðsett í húsnæði Verkfræðistofu Suðurlands á annari hæð í 'Kjarnanum' Austurvegi 3-5 á Selfossi og þar verður opnunarathöfnin haldin.
Markmiðið með uppbyggingu Skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofuaðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótles eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð. Hér er einnig um að ræða möguleika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra mun opna Skrifstofuhótelið með formlegum hætti. Árni er búsettur í Hveragerði og telst því vera í markhópi þeirra sem geta nýtt sér Skrifstofuhótel, enda hefur hann sótt vinnu til höfuðborgarsvæðisins á undanförnum árum. Að auki munu talsmenn Sunnan3 verkefnisins og rekstraraðilar Skrifstofuhótelsins flytja ávörp og kynna hugmyndafræðina á bak við skrifstofuhótelið og Sunnan3 verkefnið almennt.
Frekari upplýsingar er að finna á: www.sunnan3.is eða hjá verkefnisstjóra Sunnan3, í síma 6931533, netfang: siggi@sunnan3.is
Nú geta íbúar sent inn umsóknir með gagnvirkum hætti beint af þjónustutorginu. Allur ferill og afgreiðsla umsóknarinnar er sjálfvirkur sem sparar tíma við innslátt, vinnslu og flýtir fyrir ákvarðanatöku. Til að byrja með verður hægt að senda inn umsóknir um grunnskóla, frístundarheimili, skólamáltíðir, og leikskóla
Hér er um að ræða tímamót í rafrænum samskiptum sveitarfélaga og íbúa. Það sem greinir þetta þjónustutorg frá sambærilegum kerfum er að þarfir íbúanna eru settar í forgang og þeir fá þannig fullkomið sjálfsafgreiðslukerfi í hendurnar.
Þjónustugátt Sunnan 3 er varin með SSL eða Verisign. Það þýðir að öll samskipti á vefnum eru dulkóðuð. Þetta getur notandinn séð á því að þegar hann skráir sig inn í þjónustugáttina þá breytist vefslóðin úr http í https. Á öruggu vefsvæði birtist einnig lokaður hengilás neðst til hægri í vefskoðaranum. Með þessu móti má því alltaf sannreyna hvort tiltekin vefsíða sé örugg (e. secure).
Þegar notandi sækir um aðgang að þjónustugáttinni þá fær hann sent í netpósti notandanafn og lykilorð. Þessar upplýsingar eru einnig sendar í venjulegum pósti til viðkomandi aðila. Lykilorð eru krypteruð í grunni kerfisins og enginn hefur því aðgang að þeim. Ef notandi týnir lykilorðinu sínu, þá býr kerfið til nýtt lykilorð, þegar smellt er á TÝNT LYKILORÐ á forsíðu Sunnan 3.
Lykilorðið kemur í veg fyrir að óviðkomandi aðilar komist inn á
svæði notanda og ber notandi ábyrgð á öllum aðgerðum sem
framkvæmdar eru undir hans lykilorði. Leiki einhver grunur á að
aðrir viti lykilorðið er nauðsynlegt að breyta því við fyrsta
tækifæri. Það má gera í þjónustugáttinni undir: Síðan mín
-> Breyta lykilorði eða Stillingar -> Breyta lykilorði.
Það er skynsamlegt að breyta lykilorði reglulega af öryggisástæðum.
Lykilorð verður vera minnst átta stafa langt. Það má vera samsett
úr tölustöfum og bókstöfum. Ekki má nota séríslenska stafi eða
tákn.
Einungis íbúinn hefur yfirsýn yfir öll sín mál. Hver stofnun, eins og skóli, frístundaheimili, tónlistarskóli, sveitarfélag sjá síðan bara það sem þeim er ætlað, umsóknina sem þeim er send.
Vistun gagna
Öll kerfi og persónugreinanleg gögn sem notendur íbúatorgs geta skoðað á torginu eru hýst á vélbúnaði hjá ANZA sem er sérhæft í hýsingu og rekstri tölvukerfa. ANZA starfar samkvæmt ströngum öryggisreglum og stöðlum og er alls öryggis gagna og kerfa vandlega gætt með það að markmiði að engin óviðkomandi aðli geti komist í kerfin eða þau gögn sem tilheyra kerfinu og notendum þess. Öll gagnasamskipti við önnur kerfi fara fram eftir öruggum og leiðum og gögn eru dulkóðuð í sendingum.


